top of page
Látum reynsluna tala sínu máli

Hér deilum við djúpri andlegri reynslu og sögum frá fólkinu sem hefur gengið með okkur í gegnum Eininguna og upplifað máttinn sem fylgir þessari vegferð okkar.

"Sannkölluð friðarstund. Tíminn færði mér skýrleika sem ég hafði ekki fundið í áraraðir. Ég fann fyrir algjöru öryggi og miklum skilningi hér."

Anna S.

"Einingin hefur sérstaka gáfu til að tengjast því sem raunverulega skiptir máli. Huggunin sem ég fékk var nákvæmlega það sem sál mín leitaði."

Markús G.

"Þessi andlegi fundur var umbreytandi. Orkan var hlý og velkomandi og sýnin sem mér voru gefin reyndust vera ótrúlega nákvæmar og sannaðar."

Sólveig K.

Vegferðin

Umsögn um námskeiðið Filterslaust flæði

“Það var svo magnað hvernig það atvikaðist að ég skráði mig á námskeiðið. Ég hafði séð það auglýst nokkru áður og ég fann að það potaði aðeins í mig. Gerði þó ekkert í því þá en þegar nálgaðist skráningarfrestinn þá man ég að í stað þess að skrá mig þá hugsaði ég, okei ég ætla að sofa aðeins á þessu í nótt og sjá hvernig mér líður með þetta á morgun. Alla nóttina var ég ekki látin í friði af námskeiðshöldurum og um morguninn var ég ekki í vafa. Ég skráði mig.

 

Afskaplega vel uppsett námskeið sem samanstóð af fyrirlestrum, speglun í samtölum, innsæisæfingum og dásamlegri næringu sem boðið var upp á. Mig langaði að dýpka skilning minn enn frekar sem tókst. Mér fannst ég komin heim, það mikið sameiginlegt átti ég með þátttakendum sem og kennurum. Einlægni, ljós og kærleikur var með okkur þessa dásamlegu helgi og satt best að segja kom ég sjálfri mér mest á óvart. Ég er himinlifandi með þá reynslu sem ég öðlaðist og allt aðra sýn og trú á mátt minn og megin. Takk Hrafnkatla og Jón Ragnar fyrir ykkar fallega ljós.”

 

Yndisknús og kærleikur,

- Guðrún Birna

Vegferðin

Umsögn um miðlun og námskeið frá Hrafnkötlu og Jóni

Ég á eiginlega ekki nægan orðaforða til að lýsa því hversu djúpstæð og mikilvæg skilaboðin eru sem Hrafnkatla er að færa okkur með því að opna fyrir röddum æðri vídda og leyfa þeim að flæða til okkar í gegnum hana. Það er svo sérstakt, fallegt og kraftmikið að fá þessi boð á íslensku, á okkar ástkæra móðurmáli.

 

Takk, elsku Hrafnkatla og Jón, fyrir að skapa þetta rými saman. Þið eruð ótrúlega falleg orka í sameiningu og það sést í öllu sem þið miðlið. Hver einasti setning, hvert orð sem kemur í gegn er svo dýrmætt og nærandi að það mætti alveg varðveita þetta allt í bók. Þetta eru þau skilaboð sem hvert einasta barn á Íslandi ætti að fá að heyra – svo þau geti fyrr í lífinu áttað sig á því hvað heldur þeim niðri, hvað aftrar þeim í að leyfa eigin ljósi að skína óhindrað.

Hrafnkatla er sannarlega mikilvæg sál í hækkun tíðni hér á Íslandi og ómetanlegt að hún skuli hafa hæfileikana til að miðla því til okkar hvernig við getum hvert og eitt farið í þessa innri ferð – ferðina að hækka eigin tíðni. Því það er alltaf mín ábyrgð að lyfta minni tíðni, minn innri eldur, mitt ljós.

 

Námskeiðið þeirra var fyrir mig yndisleg staðfesting á þeirri vegferð sem ég hef verið á. Vegferð sem hefur tekið sinn tíma og mun halda áfram, en hún hefur verið svo rík af lærdómi. Sem IFS (Internal Family Systems) meðferðaraðili fann ég djúpa samhljóm með kenningum IFS og þeim skilaboð sem þau miðla – eins og tveir þræðir úr sama vef. IFS sem er eins og shamanismi settur í vestrænan búning (ef meðferðaraðilinn nemur þessa spiritual hlið á náms-efninu) ferðin að hitta áfalla- og verndarpartana okkar, sjá þá í kærleika og koma jafnvægi á þeirra hlutverk.

 

Takk yndislegu þið fyrir ykkar framlag til jarðarinnar og litla Íslands. TAKK

- Auður Elísabet Jóhannsdóttir

Tengstu þínum innri anda

Taktu fyrsta skrefið í átt að skýrleika og bata. Bókaðu einkatíma hjá reyndum miðlum okkar og upplifðu þann frið sem hlýst af djúpri andlegri tengingu.Taktu fyrsta skrefið í átt að skýrleika lífsins og bata. Pantaðu tíma hjá andlegum sérfræðingum sem veita vandaða innsýn og kærleika í hverju verki.

bottom of page